Færslur: 2008 Júní

29.06.2008 19:28

Síðasta vika.

Mánudagur 23.júní.
Fór ég suður með Sólveigu systir. Hún var á bílnum hennar Stínu (hann eyðir svo litlu) , með okkur var Brúnó (brúni hvolpurinn) hann var að fara í Borgarnes en þar tók dóttir eiganda Brúnós sem er í Skagafirði. Við vorum í hundafarrími í Baldri, passaði ég hann svo þegar Sólveig seti bensín á bílinn í hólminum, leyfa honum að pissa. Stopuðum við Lyngbrekku hittum Steina og Diddu, þeim fannst náttúrulega hann Brúnó algert æði.

Gisti ég með Sólveigu hjá Maríu (teigndadóttir Sólveigu) Páll var á sjó. En þau búa í Kópavogi á jarðhæð. Þau eru búinn að koma sér vel  fyrir, kominn þessi fínni pallur.  Grilaði María fyrir okkur kjúla og sætar kartöflur, mjög gott.

Eftir glæstar þeyttumst við víða um höfuðborgina áður en að aðalerindinu var komið en það var að fara í jarðaför Ástu frænku (systir pabba) 

Gagnasafn | þri. 24.6.2008 | Minningargreinar | 510 orð

Ásta Sóley Lárusdóttir

Ásta Sóley Lárusdóttir fæddist á Framnesvegi í Reykjavík 5. nóvember 1927. Hún lézt á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 15. júní síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Jónínu Jóhannsdóttur, f. 8. nóvember 1888, d. 20.


Þetta var nú með léttustu jarðaförum sem ég hef farið í, sálmar voru sungnir líflega. En var það tengdasonur hennar sem jarðsetti Guðmundur Örn.  Mér er minnistæðast við Ástu er að hún vann í nóa síríus og sendi nammi á páskum og jólum.  Síðan var kaffi á sjónvarpstöðuni OMEKU, vorum við Sólveig smá tíma að finna hana.  

Við Sólveig skeltum okkur í bíó á Indjana Jones IV kl: 20  og var hún mjög góð. Mæli með henni. 

Náðum ekki á bónus svo við gistum aftur í bænum. Komum við í Laxárholti á heimleið. fórum svo í seinni ferð í Baldur á miðvikudeginum.  Var verið að heyja á Múla.  Steinni og Didda eru búinn að heyja fyrri slátt og kominn með nóg hey.

Doddi er að fara að komast í sumarfrí, og er nóg sem við ætlum að gera, t.d. mála húsið okkar, vinna í garðinum og fl. Það á líka eftir að heyja allt.


Framundan héraðsmótt hhf á Bíldudal 4-6.júlí. 

20.06.2008 07:34

17.júní og fl.

Nú blogga ég.
12.júní var fyrsti dagurinn hjá Svenna í vinnuskóla hér á Barðaströnd. Er verið að vinna í kringum skólann.

En varð að taka hann fyrr til að koma á Patró. En Smári var að fara til læknis og fl. En kl: 18 byrjaði sparkvellaleikur á Tálknafirði. Það var gaman en það kónaði ansi mikið og áhorfendur voru orðnir lopnir. En Sveinn skemmti sér að spila og það var aðalatriðið. En krökunum  var blandað í liðum.  Mamma var búinn að tala um hvað pitsurnar væru góðar í Hópinu svo við skeltum okkur þanngað og mamma kom. (að vísu bilaði bílinn og ég varð að sækja hana við aflegjaran). Komum seint og þreit heim.

 13.júní. Fundur kl:16 í Flókalundi sem sláturfélagið á Hvammstanga og Sauðarkróki heldu. Vilja fá fleiri í viðskipti og helst innleiða Blöndós, sagði okkur frá nýjum spennandi markaði í Rússlandi, þeir vilja kaupa gærunar aðalega vegna ullarinnar, þeir eru að senda hrossahjöt og fl. Í lokinn var svo gott kaffi og allir fengu húfur.

 13-15.júní helgina var ég að mjólka á Vaðli, en þar eru 11 mjólkandi kýr, þær eru mjög góðar og stiltar við mann.  Á laugardagskvölmjöltunum fór ég hjólandi og Smári með mér. Enda mjög gott veður.  Ég þurfti ekki að gefa eða sinna hundinum henni Perlu, það voru aðrir í því.

16.júní. fórum við Smári á Patró, gerðum helling, hann til læknis að taka blóð. Matur hjá Sólveigu, sund og að síðustu fórum við í heimskókn til Kiddýar á sjúkrahúsinu. Þegar við komun heim var enn fundur um þjóðlendur. Doddi bað mig að fara að sækja pólverjana úr vinnunni. Það var kvast og tók aðeins í bílinn og við fildumst með stormsveipunum í fjörunni fyrir neðan Hvamm. Þegar ég kem heim fer ég með póst inn að Krossi, en þegar ég ætla úr bílnum kemur Árni bakandi og á bílin minn. Þetta var ekki harður skelur en það kom dæld á aftur brettið.  Þau hjón voru að drífa sig á Baldur og hvorki heyrðu eða sáu mig. Fór að Vaðli að færa Hákoni hveitikökur úr mjólk frá honum.  En það er mun betra að baka þær úr ógerilssneitri mjólk, þær verða léttari og betri að öllu leiti. Það var mjög kvast og hafði tengdapabbi áhyggjur af kartöflunum í sandgarðinum að það væri fokið af þeim. Þegar við ætluðm að fara úteftir að gá að garðinum var Gísli og Pálmi við björgunarsveitahús, en þá var útkall frá Baldri, en honum gekk illa að leggja að og flutningarbílarnir hentust til. Doddi og strákarnir með í það og ég fór ein út á Múla, sagði Barða frá útkallinu. Ég fór að gá og voru svona  um 20 kartöflur sem sáust uppúr sandinum ég seti yfir þær og kom mér uppeftir.  Fór í Birkimel var að undirbúa kaffið og vorum við ekki lengi að því.

 

17.júní. Í minn hlut var að gera brauðtertu með rækjum. Kláraði það og fór með þær í kælirinn í Birkimel. Tíndi Lúpínu í vasa á borðinn. Doddi flagaði. Að vanda var kaffið gott hjá okkur konum í Neista. Ungmennafélagið var búið að skipulegja leiki sem tókst vel. Ég prufaði að spila fótbolta með glös á augunum með gati og var þetta mikil þrekraun að hitta boltan.  Reypitog var milli 30 ára og yngri, tókum við eldri þær yngri í nefið.  En lúðuhlaupið var erfiðra þegar var farið að tefja fyrir. EN þetta var allt til gamans gert. 

 

Framundan er unglingamótið á Bíldudal á laugardaginn.

10.06.2008 22:05

Breit útlit

Eins og lesendur hafa kannski tekið eftir var ég að skipta um grunnmynd og hausmynd. Í grunnmyndinni er Gofa sem bar síðast og varð náttúrulega gofóta lambið að verða hrútur en hvíta gimbur.   Sveinn sá þetta strax í fjarska.  Ég vonaði náttúrulega eftir að það væri öfugt.

Í dag kláraði ég að þrífa í skólanum og er voða ánægð með það.  Tók náttúrulega allt í geng í hólf og gólf.  Allt glampandi hreynt.

Næst á dagskrá að gera Eikarholtið glampandi hreynt.

Sveinn er að byrja í unglingavinnu núna á fimmtudag og verður í viku.  Á svo kost á að vinna á Patró, er að spá að hann gæti farið á mánudagmorni og kæmi svo heim á fimmtudag með Helga Páli, en veit ekki hvort það lukkast.

Sparkvallamót í fótbolta verðu held ég á fimmtudaginn, en það var auglýst á morgun. Það er á Tálknafirði.

Var að setja myndaalbúm með myndum af matarveislunni á Innri-Múla sem var síðasta laugardag. 

Ekki vera feiminn að skifa í gestó og hér fyrir neðan.

09.06.2008 09:38

Annasöm vika

Í síðustu viku kláraði ég vinnu sem leiðbeinandi að ganga frá og taka til (á miðvikudag).  En er ekki búinn með frágang í eldhúsi.
Við áttum von á fólki í Eikarholtið svo mikil tími fór í að gera klárt þar. En það er búið að klára pallinn og skjólveginn og bera á hann. Tengja pottinn og þrífa. Setja upp gerfihnattadiskinn, en það næst ekki Thor (þar sem rúv er) heldur bara Astra. Við erum með það og erum að horf á nokkrar þýskar stöðvar sem eru með góðum myndum og þáttum. 
Erum búinn að setja niður kartöflur í heimagarðinn, eru tvö lítil beð og úti á Múla eru fjögur beð í sandgerðinum við fjöruna.  Settum líka í heimagarðinn gulrætur og prufuðum lauk.  Á fimmtudagskvöldið var kvennfélagsfundur, aðalmálið var 17.júní kaffið. En helmingur af konunum verður ekki heima.   
Kvennahlaupið var á föstudagskvöldið og var góð þátttaka. Byrjað á Múla og farið úteftir að fossi, ekki hægt að kvarta með veðrið, millt og hlítt.  Við Doddi fórum gangandi í garðinn að bera á karteflubeðinn, eftir hlaup og þá var kominn dögg.

Á laugardagskvöldið var feiknar mikil og góð grillveisla á Múla, Heiða og ég mættum með veitingar og svo stóð Barði við grillið og matarborðið svignaði undan krásunum.  Alex kom með eftirrétt sem var Rúsnesk kaka, mjög sérstök. Ég hélt fyrst að þetta væri ostakrem milli smjördegi. En þetta var mjólk og sykur þeitt seman. Segi bara takk æðislega fyrir mig. 
Gaman að sjá hvað ástin liggur í loftinu á Múla    .

Í þessari viku er að klára eldhúsið og það sem fylgir því í skólanum og klára Eikarholtið það kemur fólk í það núna á föstudag. 

Framundan Unglingamótt á sunnudaginn 15.júní á Bíldudal.
kaffi 17.júní sem kvennfélagið sér um. Leiki sér Ungmennafélgaið um.


04.06.2008 09:19

Sunnudagur á Sjómannadegi

Vöknuðum við hveitikökuylm hjá mömmu. En það er venja á henni að baka hveitkökur á sunnudagsmorgun og mæta til Sólveigar með þær. Doppa á svo eina sér sem mamma gefur henni.  Strákarnir hjóluðu en við Doddi fórum gangandi til Sólveigar á eftir mömmu. Sáum við þegar skrúðgangan fór til kirkju.  Sólveig var búinn að setja hvolpana út, og fyldumst við með þeim leika sér.

Strákarnir skoðuðu hjólinn en við skruppum heim að sinna hundum, kisu og fiskum. Kíktum á kindurnar, pelalambið var dautt. 
 Hér er Smári alveg að henda stelpunni í karið með lituðu vatni.
Strákarnir tóku þátt í leikjum í Króknum. Yngstu 7 ára og yngri áttu að borða kókósbollu og drekka kók. milli 10-8 ára borða lifrapylsu og drekka mysu. 11-14 ára fengu að leita að steinni í kari með lituðu vatni og borða svo dós af kotasælu með viðbætri matarolju, það gekk illa í þau, þeir bræður voru ekki ánægðir með þetta.
Þetta er nú ljótt að vera skemmta sér á að horfa á börnin troða þessu í síg, þau kúast og sum æla á eftir. 

Ekki klikkar kaffihlaðborðið hjá kennfélaginu Sif.  Ég er hrifnust af kanilltertunni og svo rjómaréttinum með ávextunum.  Ef það var jarðaber á tertunni þá tók ég sneið af henni.

Strákarnir ath með paintball sem var fyrir ofan félagsheimilið, en það er aldurstakmark 18 ára. Þeir fengu þó að skjóta úr paintballbyssu.

Eftir kaffið fórum við í safnið í gamal kaupfélagshúsinu, en þar eru gamalar myndir og ýmislegt um Jón á Vör og fl., mjög fróðlegt það á að vera opið til sept. Kvet ég alla að kíkja á það. Ég sé alveg fyrir mér að hægt verði að gera skólaverkefni í tegslum við það.

Við fyldumst nátturulega með róðrarkeppninni, enda Sólveig systir í einu liðinu.  Eftir hana fórum við heim. Skeltum okkur svo á ballið, sem var fámennara en á laugardag, en þó yfir 200 sem borguðu sig inn.  Gott ball en laugardagurinn betri.  
Fórum heim um þrjúleitið.

02.06.2008 15:27

Sjómannahelginn föst. og laugardagur

Fótboltinn á föstudag gekk ágætlega, en við unnum ekki leik enda vorum við að keppa við bestu liðinn.  Hefðum viljað keppa við stelpuliðið um tapsætið. 
Þetta var bara gaman.  Það væri auglust hægt að plata mig aftur í þetta.


Laugardagurinn var flottur.  Mættum um kl 11 upp á Sigtún þar sem var boðið upp á morgunhressingu, en það var þrjár gerðir af súpum og margar gerðir af brauðmeti eins og bollum, hveitikökum og kleinum. Svo var pottur af rabbabarasafti, mjög gott.

Þessar veitingar voru í stóru tjaldi í bílastæði hjá Skyldi.  Í tjaldinu var stór hitari og kom mikil hiti frá honum. Á meðan við fegnum okkur kom skúr.  Það var vel mætt og fólk mjög ánægt með þetta framtak. Meininginn er svo að þetta færist á næstu götu að ári.  Ég upplifði svona stemingu sem ég fann á Dalvík á fiskideginnum mikla þegar súpukvöldið er, gestristni og vináttu. Akurat sem er aldrei nó af.

Strákarnir fóru með ömmu sinni í göngu um bæinn og frædust um hann. Voru mjög ánægðir með það.

 Um 12 var kleinur og kúamjólk frá Haga á Friðþjófstorgi, og á samatíma voru Viðar og Matti að spila ásamt fl. í skúrnum við hliðina á Apótekinu.  Fólki fannst gott að fá svona hreina mjólk og þá sérstakalega fullorna fólkinu. Sólveig mætti með einn hvolpinn og urðu margir að fá að klappa, enda eru þeir svo ómótstæðilega mikil krútt.

Um 13 var fyrirlestur í Sjóræningjahúsinu, um sjómenn hjátúr þeirra.   Það var mjög frólegt en vann hún þetta af viðtölum við sjómenn í Vestmannaeyjum. Vildi heyra fl.  Sögur eins og að ef veidist vel í fyrsta róðri í nýjum buxum voru þær ekki þvegnar, og eftir nokkur ár voru þær farnar að standa sjálfar, og eitt sinn fóru þær heim og konan þvoði þær, þá hætti viðkomandi á sjó. Því þá var búið að þvo úr veiðiheppnina.

Strákarnir höfðu farið kvöldið áður á og fannst gaman.

kl 14 var markaður í fiskmarkaðnum og boðið uppá kjötsúpu (það voru tveir stórir suðupottar fullir.)  Við versluðum kleinur og punga, mjög gott.  Fengum áritaðan disk hjá Lilju með sjómannadagslaginu, sem er áheyrilegt. Hægt var að kaupa ýmsar vörur þarna. Smári keypti húfu með deri með sjómannadagsmerkinu á.
 Keppt var í þremum kraftakeppna greinum á höfinni.

Kl 16 var dorgveiðikeppni. Strákarnir vildu ekki keppan núna, fóru í sjopuna að borða pylsu. (ekki við Doddi enda söd eftir súpurnar)

Kl 17 var svo siglinginn. Þetta er góð breyting að hafa hana á laugardeginum í staðina fyrir sunnudagsmorgun. enda var óhemju fjöldi sem kom með. Var farið inn fjörð og gott útsýni yfir þorpið. Við fórum í Núpinn.
 Beið manni grill eftir siglinguna en á því var pylsur og hvalur. Ég lagði ekki í hvalinn enda var hann blóðugur, Doddi gat ekki einu sinni klárað sinn bita.
Nokkrir grunnskólakrakkar voru með atriði en það var áslátur á líkama og tunum. Þetta var æðislegt.   Hafstraumar voru svo með tónleika. En mér var orðið svo kalt að við fórum heim. En þegar ég var búinn að koma hita í kroppinn fórum við á ball með Sólon. Við skemmtum okkur vel og var 420 sem borguð sig inn og ég held að það hafi bæst töluvert í viðbótt. Í restina var tónleikasteminng, golfið þakkið af fólki.  Þær voru bara þrjár að afgreiða og var mikil biðröð á barinn, en aðal tavirnar voru posavélarnar, en það var eingin æsingur heldur var fólk bara að tala saman á meðan.  Ég lagði ekki einu sinni í að fá mér vatn á barnum.  Í raun er laugardagsballið aðalballið því þá er allt fólkið, það fara svo margir heim á sunnudag.
Við gistum hjá mömmu.


 

  • 1
Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 53810
Samtals gestir: 15190
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 20:27:53
nnn