10.09.2007 09:25

Úrhellidemba.

Það er varla hundi út sigandi. Enda strákunum kert í skólan í morgun.
Ég byrja ekki strax að vinna (byrja kl 11:30).  Er að vona að veðrið lagist áður en ég þarf að fara, en mér heyrist það bara bæta við vindi og rigningu.

Við Doddi fórum á Ísafjörð á föstudaginn. Það er hræðilegt að fara þetta, það er alger vegleysa  og vorum tvo tíma frá Þingeyri og heim. Þurtum að byrja á að þvo bílinn til að komast til að opna pallinn vegna drullu.
Þetta er óskiljanlegt því að Ísafjörður er stjórnsýslan okkar og á að vera kaupstaðurinn fyrir okkur.  En þetta getur uglust ekki verstnað.

Var að setja inn myndir af spilakvöldinu, sparkvellinum og regnbogamyndir sem ég tók í gær.

Skódinn minn er á múla, skítur í honum.  Doddi er búinn að skipta um stæri síuna en það á eftir að ath. minni síuna. 

Ég var aðeins að þrífa í Lingholti í gær.  Pólverjarnir tveir eru að koma á morgun, Henrik og Boldan.  Það verður lítið að gera hjá þeim svona fyrst. 

Stittist hratt í smalamennskur eða eftir næstu helgi. 
Flettingar í dag: 364
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 115
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 142553
Samtals gestir: 30327
Tölur uppfærðar: 8.12.2025 16:59:14
nnn