
Hér er Sveinn með gimrina sína undan Útilegu, hún Mola (kola) hún er kolótt. Hún var set út en í rigningunni varð hún svo ræfisleg og skalf að þau voru sett inn aftur.

Þetta er Spæta sem er þrílemd, svona stekur hún að heilsa mér. Hún var líka þrílemb í fyrra.

Þetta er Hálf hún var að bera hjá mér í morgun einu stóru.

Fengum gesti í gær í fjárhúsinn, Mamma bauð sjúkraþjálfaranum sem er á Patró með, hann er frá Egybtalandi ( veit ekki hvernig á að skrifa nafnið, en það hljómar eins og "í mat". Mamma kom með smurtðar bolur og hveitikökur, skúffuköku og fínerí. Sólveig, Helgi Páll, Þóra Sonja, Stína og vinkona hennar komu líka í kaffið. Þetta var mjög gaman. Ég var svo með kakó og svala.
Smá sögur svona til að skemmta okkur. Annars eru þessar myndir og fl. í nýju albúmi. Er búinn í gítarprófinu, var aðeins stressuð og flýti mér aðeins, en annars vel.