26.02.2015 19:45
Svanur / Álft
![]() |
Sá Álft fluga inn Mórudalinn í dag, spurning hvort hún hafi lent í þessu verðri greigið. |
26.02.2015 18:29
eftir storm
Það vill til að það lægir eftir storm, en þetta er búnir að vera margir þennan veturinn.
![]() |
12.10.2014 08:29
Hlaðseyri réttir
yndislegur dagur sunnudagur í okt. réttað á Hlaðseyri
![]() |
||||
mikið af fólki.
|
06.09.2014 15:02
menningarferð að Hólum
Vorum í Brúsabyggð 18 á Hólum flott hús í leigu frá Bændasamtökunum.
![]() |
fengum okkur göngutúr um svæðið. Kíktum á íþróttarlíf og menningu á Akureyri Fórum á Vesturfara setrið á Hofsósi vorum svo heppin að lenda í hóp og fengum leiðsögn. þetta er flott safn og nauðsinlegt að skilja söguna. fórum hringinn í gegnum Siglufjörð gátum lítið stopað svo mikil rigning og söfninn ekki opnuð. gaman að fara þessi nýju göng. fórum á foreldradag í Verkefnaskólanum á Akureyri sem er glæsilegur skóli. Fór í gömlu fótsporinn hennar ömmu Björg með að fara að Hrauni í Unadal, hittum heiðurs hjón á næsta bæ Hólkoti þau Hjálmar og Guðrúnu þau gátu sagt okkur ýmislegt, að hann hafi nú borið ömmu og Önnu yfir ána þegar þau komu 1955 því ekki var kominn brú fyrir. að þau hafi verið góðir grannar Árna og Bjargar, oft heimsótt þau á Akureyri þagar þau fluttu þangað. Heimsóttu stórbændur að Garðakoti, glæsilegt þar. þar eru þau Ása og Pálmi bændur en sonur þeira Jakob nú afleisingarbóndi sýndi okkur allt. Síðast skoðum við verðandi fullkomustu hausaþurrkun sem er að vera setja upp á Sauðakróki. Semsagt frábær menningarferð hjá okkur.
|
12.08.2014 15:21
ýmislegt
já góðan dag, nú er ég að reyna að vera dugleg að setja inn myndir og eru komnar frá íþóttarmóti í Borgarnesi og Sauðakróki.
Svo er það nýjasta myndaefnið en það er litla dóttir Stínu frænku.
![]() |
17.06.2014 19:03
Fjallkonan
Ljóð sem ég fór með sem fjallkona í Birkimel 17.júní 2014.
Ástkæra Ísafold
Mín ástæra Ísafold,
móðir jörð
Kraftur þinn rís
úr fjöru til fjals.
Sumar hlýju geisla
döggina bræða.
Birki ylmur
tekur völd.
Lista litum
unað veitir.
Dýralífið fyllir
tóna vors.
Kyrðar sumars
nætur leinir.
Hugur, hjarta
sál
fyllast af
þinni ást.
Silja Björg Ísafoldardóttir, 2014.
21.05.2014 13:12
hænur og ungar
Nú er ég búinn að setja inn nokkrar myndir af ungunum og hænunum.
![]() |
||
ég seti fyrst í útungavél 23.mars og fékk unga 12-13.apríl. Fékk 8egg frá mýrunum og fékk 4 unga úr þeim. sjálf var ég með frá mér 5 egg og fékk úr þeim 3unga.
|
23.02.2014 09:54
Konudagur
![]() |
Við Kvenfélagskonur Neista á Barðaströnd tókum uppá því að halda uppá konudaginn
með að fara að borða á flotta hótelinu á Patró "Fosshótel"
en nokkrar okkar höfðum ekki komið í það hús síðan það var sláturhús.
okkur var sýnd herbergi og við dáðumst af öllum gömlu myndum sem príða veggi hótelsins.
Við fengum frábæran mat sem var humarhalar í forrétt, lambaskankar í aðalrétt og svo epla eftirrétt.
Frábært kvöld
15.07.2013 13:48
sumar
![]() |
stórglæsilegir strákar sem unnu boðhlaup 15-16ára. |
ath fleir myndir í albúmum.