Færslur: 2008 September

28.09.2008 09:48

smala og rétta.

Það er búið að vera að smala frá því á mánudag og til föstudag. Réttað var í gær á laugardegi.

Á mánudag var farið frá Litluhlíðará og inneftir í hlíðinni og fjaran tekinn líka. Að innan af fossholunum á móti. Þetta var nett upphittun fyrir næstu daga.

Á þriðjudag var farið Siglunes og Hreggstaðardal. Það rekið inn á Stekkjarvík.(sem er tún sem Innri-Múli er með hjá Brekkuvöllum.) En það þurti að reka féð yfir Haukabergsvaðalinn, en þegar féð kom niður vantaði ca. klukkutíma á fjöru, var féð búið að bíða í meira en hálftíma þegar þær fyrstu fóru yfir.

Á miðvikudag var farið fyrst í Holtsdalinn og það fé rekið inn á Stekkjarvíkina síðan farið upp aftur og Haukabergsdalur tekinn og það fé líka rekið inn á Stekkjarvíkina. Höfðum við nesti með í bílunum og fegnið sér áður en var farið upp aftur. Ekki var auðvelt að fara yfir ár og sprænur því það var gríðarmikið vatn í þeim. Ég tók hálft sundtak þegar ég fór yfir á einum stað. Blotnaði þó ekki nema í annað stígvélið og annan vettlinginn. Þórður Ólafsson fór bara úr og fór berfættur yfir.

Á fimmtudag var farið niður Hrísnesdal og Fossdal (langt undir Hagatöflu). Tekið úr Stekkjarvíkini og rekið inneftir. En þetta er í annað sinn sem það er geimt á Stekkjarvíkinni og í fyrra vildi það fara upp og úteftir, núna vildi það upp en inneftir og smá mál að ná því niður í fjöruna. En það á að fara niðrí fjöru inneftir inn á tún á Múla.

Á föstudag var það Hagadalur. En nú var það prufað að fara upp Tungumúlafjall og svo úteftir.  Voru þeir ca.2 tíma að fara þaðan að Grettistaki. Við Sveinn vourm niðri og hreynsuðu múlann og kom svo Ásgeir á móts við okkur. En féð vildi ekki yfir Hagaána og fór niður með henni, komu fl. til að hjálpa þar fyrir neðan. Jói í Litluhlíð taldi 257 stk. koma.  Var giskað á að á túninu á Innri-Múla væru komið um 1500 stk.

Laugardagur var réttað og tók það ekki nema 2 tíma. Okkar fé flutt úteftir og voru það fjórir vangnar, en Árni á Krossi var búinn að bæta hæð á vakninn sinn og tók hann þá 20 fleira en áður.

Í dag sunnudag erum við Doddi að spá í að reka inn hjá okkur í Miðhlíð og taka ókunna úr. en það þarf svo að reka inn á morgun og sortera fyrir ómskoðun og svo kemur fjárbíll á miðvikudag taka lömb í slátrun á Hvammstanga.

Næstu helgi á svo að smala í Trostansfirði.

Semsagt búið að vera nóg að gera og nóg framundan. Sett nokkrar myndir inn.

18.09.2008 10:36

Lárus Lárusson

Lárus Lárusson fæddur 4.febrúar 1942 og dáinn 10.sep.2008

Nú er hann farinn, hann Lalli frændi, eins og við kölluðum hann alltaf. Hann var partur af tilverunni í uppvexti mínum í Laxárholti. Hann kom í jólafríum, páskafríum og sumarfríum, og nokkrum sinnum var hann heimsóttur í vinnunni í Reykjarvíkur ferðum.  Hann kom oft með afþreyingu sem maður fékk að njóta með honum eins og myndasögur og myndbönd. Ég man aldrei eftir honum nema glöðum og gamansömum. Þetta var eins og hann væri að koma með gull þegar hann kom með pokana af morgunkorni. En Lalli vann hjá heildsala og fékk margt á góðum kjörum svo kom hann fékk hjá bakara nokkrum það var gott að laumast í sætabrauðið sem slæddist með í brauðpokunum. 
Hann spurði mig sem tátu hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór, ég man ekki alveg hvað ég sagði, minnti hann mig á þegar ég var flutt vestur að ég væri nú á skjön við það en ég ætlaði alls ekki að búa í sveit eða eiga börn, og hvað þá að kenna. Þegar ég varð 18 ára og mátti kjósa var ég ekki vissi um hvað ætti að kjósa, hlustað ég á Lalla, hans skoðanir á stjórnmálum.

Nú kveð ég Lalla, og geymi allar góðu minningarnar um hann.

(minningargrein sem ég sendi í moggan)

15.09.2008 22:57

Jarðarfaraferð

Nú er ég í Laxárholti, en erindið er að fara í jarðarför á morgun, en föðurbróður minn hann Lalli er fallin frá. 

Ég gerði þann feil að skrifa Spotti með einu t í myndaalbúni.  Ég gat ekki leiðrétt þetta.

Annars eru göngur að byrja í vikuni.

Skrifa meira seina ef tími vinnst.
  • 1
Flettingar í dag: 119
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 98
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 104572
Samtals gestir: 27343
Tölur uppfærðar: 31.5.2025 08:56:17
nnn