Færslur: 2009 Mars

30.03.2009 08:37

Góður afmælisdagur.


Við Doddi kominn á dansgólfið á fyrirtækjaárshátíðar Vesturbyggðar.

Við vorum sjö saman af Barðaströndinni sem fórum vestur á hana, en það voru fleiri sem ætluðu en gugnuðu vegna veðurs, en það slapp og komust við klakklaust vestur og til baka um nóttina.
Veislustjóri á ársháttíðinni var Óli Sæm, hann var frábær, hann lét allan salinn syngja fyrir mig.
Maturinn klikkar ekki hjá Kollu og systurm og fl. maturinn var hreinnt dásamlegur.
Patresfirðingarnir voru með tískusýningu en það voru karlmenn í kvenfatnaði, náttúrulega hlægilegt.
Undir regnbogna var leikið, það var gaman að því.
Bíldalingarnir klikka ekki með söngatriðinn, "bleðlar, nógir bleðlar hér, engin kreppa hér, sagði Hanes mér, nó vinna hér fyrir vestan."
Ingó og veðurguðirnir voru algerir stuðboltar,  dansgólfið alltaf fullt.

:) ath.setti nokkrar myndir af háttíðinni. :)

24.03.2009 14:27

Alltaf nó að gerast í sveitinni

Nóg um að vera í sveitinni eins og vanalega. Á Föstudaginn 20.mars var farið í Reykhólasveit, en það var 12 manns hér úr fjárræktarfélaginu sem fóru, að skoða fjárhús og hitta sveitungana þar. En þeir tóku mjög vel á móti okkur, með gleði og höfðingjaveitingum. Við fórum á tveim bílum, farið 1/2 10 af stað og komið um kl 22 um kvöldið (allavega annar bílinn.) 


-------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 
Á Laugardaginn 21.mars var prófkjörið, við fórum og þáðum vöfflur hjá Eyrúnu og Tryggva í Dunhaga í Tákanfirði.


Á Sunnudag 22.mars var gleðilegur dagur þegar úrslit prófkörisins voru ráðinn, kom það í ljós að Eyrún komst í 3.sæti og Ásbjörn í 1.sæti. Við fórum að samgleðjast henni um kvöldið.  Ég slepti að fara á prjónakvöld í Flakkaranum, en komu konur saman með á prjónunum.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Á Mánudag 23.mars kom tónlist fyrir alla í skólann, en það var þjóðlög, íslensk og ensk.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Við Sveinn gáfum og ég tók nokkrar myndir af fénu svona áður en það verður tekið snoðið af þeim.

18.03.2009 14:57

Góð suðurferð

Fyrir viku fór ég suður með Sveinn, en Smári varð eftir hjá Diddu og Steina í Laxó. Við gerðum mart og mikið. Kígtum á Jónu og Enok, Nínu systir, Guðrúnu og strákana. En við gistum hjá Siggu.  Kelli í landi, hann og Hanna Stína á kaf í námi. Eins og Jóna og Guðrún.

Aðal erindið var að fara með Sveinn til háls,nef og eyrna, en það kom út að það eru ekki kyrrtlarnir heldur bara bólgur í slímhúðinni að pirra.  Tók nokkrar myndir hjá Jónu komnar inn í albúm.


Við Sveinn hjá Jónu.

  • 1
Flettingar í dag: 78
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 206
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 98602
Samtals gestir: 26513
Tölur uppfærðar: 5.5.2025 09:21:21
nnn